Páskarnir á VOX
Til að halda upp á páskana hafa kokkarnir á VOX töfrað fram glænýjan matseðil! Boðið verður upp á sérstaka hátíðarmáltíð, þar sem ferskt íslenskt lambakjöt verður í algjöru aðalhlutverki.
Komdu með fjölskylduna á VOX um páskana og bragðaðu á þessum flotta deiliseðli.
Lambakjötið er sérvalið frá Langholti í Bæjarsveit og hefur hangið í rúma viku og aldrei frosið. Kjötið er síðan meðhöndlað af alúð í handverksframleiðslunni í Brákarey, áður en það er síðan matreitt og borið á borð fyrir gesti á VOX. Er hægt að hugsa sér betri hátíðarmat um páskana?
Páskaseðill
Hörpuskelja crudo
Noisette, soja, sýrður rjómi, radísur, stökkt ger
Bökuð rauðrófa
Piparrót, kartöflur, makadamian hneta, grænkál
Kolagrillaður lax
Blómkálssveppir, kerfilmauk, heslihnetur, hvítvínssósa
Hægeldað lambarif
Lamba krókettur, grillaðar gulrætur, pikklað fennel, lamba soðsósa
Profiteroles
Vatnsdeigsbolla fyllt með mars-súkkulaðimús, pekan crumble, serrí sósa
Verð: 12.900
Brunchinn okkar verður líka í boði alla páskana, frá 17. - 21.apríl, og verður settur í sérstakan páskabúning!
Öll verð eru í íslenskum krónum. Innifalið í verði eru þjónustugjald og virðisaukaskattur.
Ef um óþol eða ofnæmi er að ræða, vinsamlegast látið þjóninn ykkar vita