VOX Restaurant in Reykjavik.

Restaurant

VOX Restaurant er glæsilegur veitingastaður þar sem norrænt hráefti nýtur sín til fulls og þá sérstaklega það íslenska. Áhersla er lögð á nærtækt hráefni og endurnýjun hefða, en kraumandi metnaður ljær réttunum heimsborgarlegt yfirbragð. Við erum í góðu samband við bændur, fiskimenn, skotveiðimenn og berja- og sveppatínslufólk í villtri, íslenskri náttúru. Hráefnið er því alltaf náttúrulega ferskt. Útfærslan er frumleg og þjónustan fagleg og umfram allt persónuleg.

Á VOX er í boði úrval litríkra rétta. Þar er opið frá morgni til kvölds og áhersla lögð á fallegar máltíðir á viðráðanlegu verði. Nútímalega hádegishlaðborðið okkar hefur vakið athygli og VOX brunchinn á laugar- og sunnudögum er frægur um alla borg. Borð fyrir einn, tvo eða heilan hóp. Hér er allt sem þarf fyrir notalega kvöldstund eða hressandi hádegisfund.

VOX Restaurant

  • Opið alla daga.frá kl. 18:30 - 22:30.