High Tea í fyrsta sinn á Íslandi á VOX bar
Að hittast á eftirmiðdögum yfir High Tea er mikið að ryðja sér rúms aftur í Evrópu og víðar, ekki síst meðal ungs fólks. Yfirleitt þarf að panta borð í High Tea um helgar með löngum fyrirvara á helstu hótelunum t.d. í London, og er mjög algengt að sjá heilu fjölskyldurnar eyða síðdeginu saman á þennan huggulega hátt.
Eitthvað nýtt og öðruvísi
Á Hilton Reykjavik Nordica verður High Tea í boði á VOX bar alla daga vikunnar frá kl. 14:00 -18:00. Þannig gefst færi fyrir þá sem vilja halda óformlega fundi til að hittast yfir góðum veitingum saman í fallegu umhverfi. High Tea tilvalin leið til að bjóða uppá eitthvað nýtt og öðruvísi.
Hilton High Tea MenuAfgreitt alla daga 14:00 – 18:00
Kaffi eða te innifalið
Hilton High Tea* ISK 2.300
Þrjár gerðir af gómsætum smásamlokum, heimatilbúnar kökur og sætmeti ásamt ávaxtabitum.
Hilton High Tea Healthy* ISK 2.300
Þrjár gerðir af gómsætum smásamlokum, heilnæmar, heimatilbúnar kökur og enn fleiri ávaxtabitar.
High Tea fyrir börn* ISK 1.300
Tvær gerðir af gómsætum smásamlokum, litlar muffins, sörur og ávextir.
Glas af ávaxtasafa.
*Fyrir 2 að lágmarkiVið mælum með eftirfarandi meðlæti til að fullkomna upplifunina:DrykkirKampavín 12 cl
Marguet Blanc de Noirs Brut ISK 2.200
Marguet Grand Cru Brut Réserve ISK 2.200
Kínverskt TeBlossom Tea ISK 450
Tegundir:Golden Jasmine / black tea
Jasmine Lover / white tea
Lavender Dream / white tea
Sunset Oolong / oolong tea
Shooting star / green tea
Uppfært í september 2010